Fyrstu tölur úr Egilshöll

Leikjadagskrá mótsins (breytt)
Leikjadagskrá mótsins (breytt)


Hér eru fyrstu úrslit sem borist hafa af Iceland Ice Hockey Cup í Egilshöllinni.

Stelpurnar okkar úr meistaraflokki leika með tveimur liðum eins og fram kom í frétt hér fyrir helgina, Svarta liðinu (landsliðskonur) og Rauða liðinu (pressulið). Rauða liðið vann Svarta liðið 2-1 í fyrsta leik í gærkvöldi, en síðan unnu bæði þessi erlenda andstæðinga sína í morgun. Rauða liðið sigraði kanadíska liðið Iceland 1, 3-0, og Svarta liðið sigraði Ice-O-Topes frá Vancouver í Kanada, 3-2.

Valkyrjur þurftu hins vegar að játa sig sigraða í morgun, 0-8 í fyrsta leik sínum í mótinu, en mótherjinn var kanadíska liðið Lightweights frá Toronto. Á vef Bjarnarins má sjá úrslit leikja í kvennaflokki

Strákarnir í Old Boys SA áttu fyrsta leik gegm Birninum í gærkvöldi samkvæmt leikjadagskránni, en við höfum ekki upplýsingar um úrslit þess leiks. Á vef Bjarnarins má sjá úrslit leikja í karlaflokki