Karfan er tóm.
Lokaleikur Akureyrarmótsins í krullu fór fram í gærkvöldi. Garpar sigruðu Freyjur örugglega, 10-1, og náðu þar með þriðja sætinu.
Lokastaðan:
1. Mammútar - 4 vinningar
2. Ice Hunt - 3 vinningar
3. Garpar - 2 vinningar
4. Freyjur - 1 vinningur
5. Víkingar - 0 vinningar
Mammútar eru því Akureyrarmeistarar í krullu 2013. Liðsmenn Mammúta eru sem fyrr þeir Jens Kristinn Gíslason, Jón Ingi Sigurðsson, Ólafur Freyr Númason, Ragnar Jón Ragnarsson (Humi) og Sveinn H. Steingrímsson.
Nú stendur yfir skráning í næsta krullumót, Gimli Cup, sem hefst mánudagskvöldið 11. nóvember. Fyrir fyrstu umferðina í Gimli Cup verður dregið um töfluröð og jafnframt verða afhent verðlaun fyrir Akureyrarmótið.