Gimli Cup: Víkingar og Garpar efstir

Víkingar og Garpar hafa unnið báða leiki sína til þessa.

Önnur umferð Gimli Cup fór fram í kvöld og voru leiknir þrír leikir. Víkingar unnu Fálka, Garpar unnu Riddara í einum stysta krulluleik sem leikinn hefur verið á Íslandi og þótt víðar væri leitað og Mammútar unnu Skytturnar. Víkingar og Garpar hafa unnið báða leiki sína til þessa, Fálkar og Mammútar hafa unnið einn leik.

Úrslit kvöldsins:

Víkingar - Fálkar  6-1
Skytturnar - Mammútar  4-6
Garpar - Riddarar  11-3

Þriðja umferðin fer fram miðvikudagskvöldið 10. nóvember en þá eigast við:

Braut 2: Riddarar - Skytturnar
Braut 4: Fálkar - Garpar
Braut 5: Fífurnar - Víkingar

Ísumsjón: Riddarar og Skytturnar