Gimlicup lokið

Skytturnar sigruðu Mammúta.

Lokaleikur Gimlicup fór fram í gær, en sá leikur skar úr um hvaða lið endaði í þriðja sæti. Skytturnar sigruðu Mammúta og gulltryggðu þannig þriðja sætið. Þetta var eini tapleikur Mammúta í mótinu. Mammútar sigruðu mótið með 12 stig. Garpar enduðu í öðru sæti með 12 stig en þar sem Mammútar sigruðu Garpa gildir reglan um innbyrðis viðureign. Skyttur enduðu í þriðja sæti með 8 stig.