Karfan er tóm.
Sl. mánudag var fyrsti leikdagur Haustmótsins 2016. Mótið fer þannig fram að dregið er í lið og leiknir 6 endar. Stig reiknast á hvern leikmann þannig að 2 stig fást fyrir sigur og 1 fyrir jafntefli. Eitt stig fæst fyrir hvern unnin enda og loks stig fyrir hvern skoraðan stein. Eftir fyrsta leik er staðan svona:
Árni Grétar, bötti og Hallgrímur 14 stig
Kalli, Óli Hreins og Rannveig 10 stig
Jón Rögnvalds, Kiddi Þorkels og Svana 8 stig
Fúsi, Gísli og Rúnar 2 stig
Mánudaginn 17. okt verður 2. leikdagur. Allir velkomnir, hvort sem þeir hafa mætt á fyrsta leikdag eða ekki. Mæting kl. 18:45.
Einnig eru allir velkomnir á opna æfingu sem hefst kl. 17:30.