Heimsmeistaramótið á skautum í Gautaborg, mars 2008

Við fengum þetta tilboð og vildum gefa öllum tækifæri sem hefðu áhuga á að fara

kveðja stjórnin

Heimsmeistaramótið á FigureSkating í Gautaborg Dagana 21 - 24.mars 2008

Óskastundir bjóða uppá ferð til Gautaborgar á heimsmeistaramótið í Figure skating sem haldið verður dagana 18.- 23.mars 2008.  Óskastundir bjóða uppá viku-, og helgarferð á mótið.  Helgarferðin hefst föstudaginn 21.mars og lýkur mánudaginn 24.mars.  Flogið verður með Icelandair með millilendingu í Kaupmannahöfn og svo þaðan beint til Gautaborgar.  Gist verður á Quality Hotel Panorama sem er 4.stjörnu hotel í 1000mtr fjarlægð frá leikvangi mótsins og tíu mínutna göngufæri frá miðbænum.  Skipuleggjendur mótsins mæla með þessu hóteli.  Hægt er að skoða hótelið nánar á vefslóðinni,  http://www.panorama.se/

Verð í 2ja manna herbergi á Hotel Panorama í 3.nætur         77.000 á mann                      

Verð í 1 manns herbergi á Hotel Panorama í 3.nætur            88.000                           

Innifalið í verðinu er flug og gisting í 3.nætur ásamt morgunverði og rútuferðum til og frá flugvelli erlendis. Hægt er að kaupa staka dagsmiða á viðburði mótsins hér hjá okkur og kostar hver dagur 4.000,- en taka þarf fram við pöntun hvaða daga miðarnir eiga að gilda.

Verð í 2ja manna herbergi á Hotel Panorama í viku         104.500 á mann                      

Verð í 1 manns herbergi á Hotel Panorama í viku            131.000                           

Innifalið í verðinu er flug og gisting í 7.nætur ásamt morgunverði og rútuferðum til og frá flugvelli erlendis. Hægt er að kaupa ferðina með miðum á ALLA VIÐBURÐI mótsins þessa viku og hækkar þá verðið úr 104.500,- uppí 133.000,- á mann mv tvo í herbergi og úr 131.000,- í 159.500,- krónur í einstaklingsherbergi.  Einnig er hægt að kaupa staka dagsmiða hér hjá okkur og kostar þá hver dagur 4.000,- en taka þarf fram við pöntun hvaða daga miðarnir eiga að gilda.TÖKUM VÍSA OG EURO OG BJÓÐUM UPPÁ 5 SKIPTA GREIÐSLUDREIFINGU ÁN VAXTA. Viku eftir pöntun þarf okkur að hafa borist 15.000,- kr óafturkræft staðfestingargjald og hálfum mánuði fyrir brottför þarf lokagreiðsla eða samningur um greiðslukjör að hafa borist.

Allar nánar upplýsingar á oskastundir@oskastundir.is eða í símum 8400-234 / 8400-235