Karfan er tóm.
Fyrri leikurinn hefst kl. 16:30 og þá taka Víkingar á móti Húnum en þessi leikur er Víkingum gríðarlega mikilvægur í stigasöfnun fyrir úrslitakeppni. Húnar eru sýnd veiði en ekki gefin, en síðustu viðureign liðanna lauk með 6 - 4 sigri Víkinga í spennandi leik.
Strax á eftir karlaleiknum spila Ásynjur við ástralskt kvennalið sem er hér í heimsókn. Gestirnir spiluðu við Ynjur í gærkvöldi og lauk þeim leik með sigri Ynja 4 - 0.
Þá er það ákveðið - deginum verður eytt í skautahöllinni í dag.