Hópferð á ÍSS bikarmót A flokka og Haustmót eldri B flokka

Á foreldrafundi í vikunni var ákveðið að fara í hópferð á ÍSS bikarmót allra A flokka og Haustmót eldri B flokka, þ.e.a.s. 14 ára og yngri B, 15 ára og yngri B og 16 ára og eldri B.  Sjá nánar hér. 
 

Mæting verður föstudaginn 7. nóvember klukkan 11:30 og verður lagt af stað frá skautahöllinni klukkan 12. Gist verður á Farfuglaheimilinu í Laugardal. Fararstjórar verða Heba, mamma birtu í 12A, Hóffa mamma Hrafnkötlu í 10A og Inga mamma Guggu í 10A og Kollu í 12A. Ferðin kostar 12.500 krónur, innifalið er rúta, matur og gisting. Stjórn Listhlaupadeildarinnar hvetur fólk til þess að fá börnin til að safna a.m.k. upp í ferðina með sölu á klósettpappír, allar nánari upplýsingar fást hjá allyha@simnet.is Farsímar eru ekki leyfðir með, en foreldrar geta alltaf hringt í síma fararstjóra og börnin mega hringja heim þegar þau vilja.