22.01.2011
Nú á eftir verður spilaður seinni leikur helgarinnar í Íslandsmóti meistarflokks karla. Ef tök verða á verður ófullkomin textalýsing hér á vefnum. Í laugardalnum munu einnig eigast við í Íslandsmóti kvenna lið SR kvenna sem er að spila sitt fyrsta tímabil og SA Valkyrjur sem eru efstar að stigum í þeirri deild. SR konur munu að ég held fá liðsauka úr Grafarvoginum og má því allt eins reikna með spennandi leik þar. ÁFRAM SA ..............