Ice Cup: Óskað eftir gistingu í heimahúsi

Þreifingar eru í gangi varðandi komu erlendra keppenda á Ice Cup og er þörf á gistingu í heimahúsi fyrir eitt liðið.

Fjórir ungir danskir drengir vilja endilega koma á Ice Cup en af fjárhagsástæðum vilja þeir gjarnan fá að gista í heimahúsi ef mögulegt er. Krullufólk sem býr svo vel að geta og vilja hýsa tvo til fjóra ljúfa og glaða danska drengi er beðið um að hafa samband við Hallgrím Valsson.