Ice Cup: Stonehangers sigruðu

Sigurvegarar: Stonhangers - Martin Monhart Poulsen, Morten Gert Svendsen, Daniel Abrahamsen og Marti…
Sigurvegarar: Stonhangers - Martin Monhart Poulsen, Morten Gert Svendsen, Daniel Abrahamsen og Martin Uhd Grönbech
Dönsku strákarnir frá Tårnby-klúbbnum, Stonehangers, unnu Ice Cup þetta árið. Þeir unnu Víkinga í úrslitaleiknum.

Þetta er annað árið í röð sem lið frá Tårnby vinnur Ice Cup en í fyrra fengum við kvennalið frá sama klúbbi. Strákarnir stóðu sig ekki síður en stelpurnar sem komu í fyrra, unnu alla leiki sína í mótinu, þann síðasta, sjálfan úrslitaleikinn unnu þeir 8-3 en andstæðingarnir voru Víkingar. Þetta er í annað sinn sem Víkingar vinna silfurverðlaun á Ice Cup og reyndar í þriðja sinn sem fyrirliði þeirra, Gísli Kristinsson, leikur til úrslita á mótinu. Í bronsleiknum sigraði hollensk-íslenska liðið H4 lið Garpa 10-3.

Öll úrslit í excel-skjali hér.