Ice Cup: Þátttökugjald

Talnavíxl varð í fyrri frétt, hér er leiðrétt reikningsnúmer vegna þátttökugjalds: 0302-13-301232, kt. 590269-2989Frestur til að greiða þátttökugjaldið á Ice Cup er miðvikudagurinn 28. apríl. Greiða þarf fyrir heilt lið í einu.
Þátttökugjaldið á Ice Cup þetta árið er 25.000 krónur á hvert lið. Innifalið í þátttökugjaldinu er mótsgjaldið, opnunarhóf á miðvikudagskvöldi, pylsupartí á föstudagskvöldi og miðar fyrir fjóra keppendur á lokahóf á laugardagskvöldi. Miðar á lokahófið fyrir fimmta keppanda og/eða maka verða seldir í sjoppu mótsins og kosta þeir 4.000 krónur.

Innlend lið eiga að greiða þátttökugjaldið í einu lagi fyrir allt liðið inn á reikning Krulludeildarinnar - 0302-13-301232, kt. 590269-2989 - í síðasta lagi miðvikudaginn 28. apríl. Þegar greitt er í heimabanka skal setja nafn liðs í skýringu og senda staðfestingu í tölvupósti á netfang gjaldkera, davidvals@simnet.is. Til að auðvelda framkvæmd mótsins eru fyrirliðar eða fulltrúar liðanna beðnir um að drífa í að ganga frá þátttökugjaldinu í stað þess að flækja málið með því að hver og einn leikmaður greiði fyrir sig eftir að mótið er hafið.