Ice Cup: Tíu lið búin að skrá sig

Skráningarfrestur á Ice Cup rennur út 15. apríl. Er þitt lið skráð?

Fjögur erlend lið eru skráð til leiks á Ice Cup. Eitt lið kemur frá Danmörku, eitt frá Bandaríkjunum, eitt er blandað frá Kanada og Bandaríkjunum og eitt verður blandað Hollendingum og heimafólki. Hollensk hjón mæta til leiks og vantar munu fá tvo heimamenn í lið með sér.

Sex lið frá Akureyri hafa nú þegar skráð sig; Bragðarefir, Garpar, Kústarnir, Riddarar, Skytturnar og Víkingar. Þau lið sem ætla að vera með en hafa ekki skráð sig eru beðin um að huga að skráningu - sendist á hallgrimur@isl.is. Einstaklingar sem hafa áhuga á að vera með en vantar lið eru einnig beðnir um að láta vita.