Ice Cup: Úrslit, dagur 1

Riddarar mættu Skyttunum í fyrstu umferð Ice Cup. Hér velta Sævar og Tryggvi vöngum en ljósmyndarinn…
Riddarar mættu Skyttunum í fyrstu umferð Ice Cup. Hér velta Sævar og Tryggvi vöngum en ljósmyndarinn, Birgir Stefánsson, sem að öllu jöfnu spilar með Riddurunum en er í tímabundnu leyfi vegna meiðsla, virðist hafa komið Tryggva á óvart.
Ice Cup hófst upp úr kl. 17.30 í dag með fjórum leikjum. Aðrir fjórir leikir hófust kl. 20. Þar með er fyrstu umferð í öllum fjórum riðlunum lokið.

A-riðilk
Mánahlíðarhyskið (185,4) - Víkingar (154,5)   5-13
Svarta gengið (13,5) - Strympa (111)   4-10

B-riðill
Confused Celts (81) - Íslenski draumurinn (185,4)   18-4
Üllevål (185,4) - Slippery When Wet (80)   7-9

C-riðill
Riddarar (185,4) - Skytturnar (161)   7-8
Moscow (185,4) - Norðurbandalagið (81)   13-1

D-riðill:
The Others (185,4) - Fífurnar (51)   5-6
Garpar (100) - Whisky Macs (109,5)   3-11