Ísland - Rúmenía; 4 - 3

Hrund Thorlacius
Hrund Thorlacius
Íslenska kvennalandsliðið sigraði það rúmenska í hörkuleik í gærkvöldi í Rúmeníu.  Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann og loturnar fóru 2 - 1, 1 - 1 og 1 - 1 - mikið jafnara verður það ekki.  Í fyrstu lotunni skoraði Anna Sonja eftir sendingu frá Alissu og síðan skoraði Agga eftir sendingu frá Steinunni.

Í 2. lotu skoraði svo hún Hrund eftir sendingu frá Jóku og í 3. lotu bætti svo Hrund við 4. markinu sem jafnframt reyndist sigurmarkið, eftir sendingu frá Birnu Baldurs.  Í lok leiksins var hún Hrund valin besti leikmaður liðisins.  Frábær árangur í fyrsta leik liðsins á mótinu og nú treystum við á að liðið komist á verðlaunapall.  Íslenska liðið mætir svo Tyrkjum í dag.