Íslandsmót 2015 - Undankeppni

Leikirnir í 2. umferð undankeppninnar náðu aldrei að verða spennandi.  Víkiingar rúlluðu yfir Garpa 10-2 og Dollý lagði Freyjur 8-2.  Dollý er efst með 2 sigra en lakasta vítaskorið meðan freyjur eru neðstar en með besta vítaskorið. Stöðu og úrslit má sjá hér.

Minnt er á að 3 efstu liðin komast í úrslitakeppnina. Fyrst telja stig, svo innbyrðis viðureignir og loks vítaskor.

Í 3. umferð, mánudaginn 16. mars, mætast Freyjur og Garpar annars vegar og hins vegar Ice Hunt og Dollý.  Víkingar sitja hjá