Karfan er tóm.
Leikið verður þriðjudaginn 25. mars í stað miðvikudagsins 26. mars.
Í samvinnu við alla hlutaðeigandi hefur verið ákveðið að færa til einn leikdag á Íslandsmótinu í krullu til að hliðra til fyrir úrslitakeppni í meistaraflokki karla í íshokkí. SA á heimaleik miðvikudagskvöldið 26. mars og leikir í Íslandsmótinu í krullu sem settir voru á það kvöld verða færðir fram um einn dag og leiknir þriðjudagskvöldið 25. mars. Við fáum svellið kl. 21:00 það kvöld.
Leikir þriðjudagskvöldið 25. mars eru:
Braut 2: Skytturnar - Fálkar
Braut 3: Mammútar - Norðan 12
Braut 4: Fífurnar - Víkingar
Braut 5: Kústarnir - Garpar