Íslandsmótið í krullu: Öll liðin komin með stig

Mammútar efstir með þrjá sigra. Mammútar og Skytturnar með fullt hús.

Öll liðin ellefu sem taka þátt í Íslandsmótinu hafa nú náð stigum en Riddarar og Bragðarefir náðu sínum fyrstu stigum með sigrum í leikjum gærkvöldsins.

Úrslit leikja:

Fálkar – Svarta gengið  7-7
Kústarnir – Riddarar  3-8
Mammútar – Fífurnar  8-2
Norðan 12 – Bragðarefir  4-5

Bikarmótsfríið virðist hafa gert Mammútum gott því þeir hafa unnið fyrstu þrjá leiki sína á Íslandsmótinu og eru nú einir í efsta sæti með sex stig. Kústarnir og Skytturnar hafa fjögur stig, Skytturnar eftir tvo leiki en Kústarnir eftir fjóra. Næst koma Norðan 12 og Svarta gengið með þrjú stig en hin sex liðin hafa öll náð tveimur stigum.

Næstu leikir verða mánudagskvöldið 18. Febrúar:

Braut 2: Bragðarefir – Mammútar
Braut 3: Skytturnar – Fífurnar
Braut 4: Norðan 12 – Svarta gengið
Braut 5: Garpar – Víkingar

Ísumsjón: Garpar, Svarta gengið, Víkingar, Norðan 12.