Íslandsmótið - munið að greiða þátttökugjaldið í síðasta lagi föstudaginn 29. febrúar

Eindagi vegna greiðslu þátttökugjalds á Íslandsmótinu er 29. febrúar.

Þau lið sem ekki hafa greitt þátttökugjaldið á Íslandsmótinu í krullu eru minnt á að eindagi galdsins er föstudagurinn 29. febrúar. Þátttökugjaldið er 5.000,- krónur á lið og skal greiðast inn á reikning 0302-26-006496, kt. 301050-2599, eða beint til Ágústar Hilmarssonar, gjaldkera Krullunefndar ÍSÍ. Hafi lið ekki greitt þátttökugjald á eindaga er keppni þess þar með lokið. Jafnframt missa allir leikmenn liðsins þátttökurétt á næsta Íslandsmóti.