Karfan er tóm.
Það leit ekki vel út fyrir Jötnana þegar þeir héldu af stað suður því mikil aföll voru úr liðinu og aðeins 5 Jötnar mættu til leik auk 6 lánsmanna úr Víkingum. Mikið álag hefur verið á Jötnum undanfarið og eitthvað er það farið að taka sinn toll. Menn voru engu að síður borubrattir og mættu fullir sjálfstrausts til leiks með tvær línur og Einar Eyland á milli stanganna.
Jötnar komust fljótlega í 2 - 0 og lentu aldrei undir í leiknum fyrr en gullmark SR-inga kom í framlengingu. Jötnar voru aðeins hársbreidd frá því að krækja í öll stigin fyrir sunnan, en þeir sunnlensku jöfnuðu leikinn skömmu fyrir lok venjulegs leiktíma.
Eyland kann vel við sig á sunnlensku svelli, en hann var einmitt í markinu í Laugadalnum í fyrra þegar Jötnar unnu SR. Samkvæmt tölulegum upplýsingum þá var mikið að gera hjá honum því hann fékk um 60 skot á sig á meðan Ævar fékk helmingi færri á sig hinu megin.
Í jöfnu Íslandsmóti getur hvert stig skipt miklu máli þegar að úrslitakeppninni kemur. SR-ingum er eitthvað að fatast flugið eftir góða byrjun á mótinu, en þeir töpuðu fyrir Birninum í síðustu viku. Sunnanliðin mætast aftur næsta föstudag og það verður væntanlega gríðarlega spennandi leikur.
Jötnarnir hafa hins vegar sýnt klærnar á aðventunni og hafa velgt báðum sunnanliðunum undir uggum í síðustu leikjum. Næsti leikur Jötna verður hér á Akureyri á næstu dögum ef guð og mótanefnd leyfir.