Kvennalandsliðið spilar æfingaleiki á Akureyri!

Í undirbúningi er leikur milli kvennalandsliðsins og gulldrengjanna úr SA. Þessi lið áttust við á laugardaginn var í skemmtilegum leik.

Stelpurnar leika líka við 3. flokk S.A. en tímasetningar verða tilkynntar hér innan skamms. Meðfylgjandi mynd er úr fyrsta æfingaleik stelpnanna við S.R. þar komu stelpurnar S.R.-ingum í opna skjöldu og tóku forystu þótt ekki tækist þeim að hala inn sigur þegar að upp var staðið. Á myndinn er Snædís Bjarnadóttir að kljást við einn S.R.ingin. Þeir sem þekkja til þjálfarans kannast kanski við handbragðið!