Karfan er tóm.
Fimm liðsmenn frá Krulludeild Skautafélags Akureyrar skipa landslið Íslands í krullu (curling) árið 2014. Liðið heldur út á morgun til Zoetermeer í Hollandi til þátttöku í Evrópumeistaramótinu sem haldið verður 5.-11. október.
Með sigri á Íslandsmóti í krullu tryggir lið sér rétt til að leika fyrir Íslands hönd (sem landslið) á Evrópumótinu. Lið frá Skautafélagi Akureyrar sem kallar sig Mammúta hefur nú síðastliðin sjö ár hampað Íslandsmeistaratitlinum fimm sinnum.
Landslið Íslands: Jón Ingi Sigurðsson fyrirliði, Ólafur Númason, Andri Freyr Magnússon, Guðmundur Karl Ólafsson og Sigurður Ingi Steindórsson.
Liðið etur kappi við eftirfarandi 9 þjóðir á mótinu:
Hvítarússland (BLR), Belgía (BEL), Búlgaría (BUL), Írland (IRL), Ísrael (ISR),
Lúxemborg(LUX), Serbía (SRB), Slóvakía (SVK), Slóvenía (SLO)
Tvö lið komast upp í B-keppnina sem haldin verður í Swiss 22.-29. nóvember.
Fylgjast má með liðinu og fá nánari upplýsingar um liðið og þátttöku þess í mótum hér innanlands á vef krulludeildar Skautafélags Akureyrar, www.curling.is og á Facebook síðunni Landslið Íslands í krullu.
ÁFRAM ÍSLAND