Karfan er tóm.
Þá er komið á hreint að sunnanmenn mæta norður um helgina til að spila “old boys” hokký.
Á föstudeginum verða spilaðir þrír leikir, 2x20 mín hver með fljótandi tíma.
Áætlað er að fyrsti leikur hefjist kl. 21:20
Á laugardeginum verða líka spilaðir þrír leikir, 2x20 mín en með klukkustoppi. Fyrsti leikur á að hefjast kl. 17:20
Farið verður yfir ísinn á milli leikja.
Dagskrá móts:
Fóstud. 18.01.08 kl. 21:20 SA-SR
Fóstud. 18.01.08 kl. 22:20 SA-Björninn
Fóstud. 18.01.08 kl. 23:20 Björninn-SR
Laugard. 19:01.08 kl. 17:20 SA-Björninn
Laugard. 19:01.08 kl. 18:30 SR-Björninn
Laugard. 19:01.08 kl. 19:40 SA-SR
Laugard. 19.01.08 kl. 20:50 Verðlaunaafhending
Laugard. 19.01.08 kl. 21:30 Hlaðborð á Kaffi Jónsson