Minningarót um Magnús Finnsson

Minningarót um Magnús Finnsson verður haldið 2. og 3. febrúar í skautahöllinni á Akureyri.  “Old Boys” lið SA, SR og Bjarnarins munu mætast og spila um Magnúsarbikarinn. Þáttökugjald er kr: 1.000,- pr. mann. Þetta er í annað skiptið sem er spilað um bikarinn og vann SA í fyrra. 

Hér fyrir neðan er leikjaplanið, gert er ráð fyrir að spila 2x20 mínútur fljótandi tíma á föstudagskvöldið.  Á laugardaginn er gert ráð fyrir að spila fljótandi tíma 20 + 10, leikhlé, 10 + 20, þetta er sama fyrirkomulag og er spilað í 3. flokk. Það geta orðið breytingar á þessu fyrirkomulagi, fer eftir mætingu og ástandi leikmanna.

Föstudagurinn 2. febrúar

21:15   SA-Björninn

22:10   SA-SR

23:05   SR-Björninn

Laugardagur 3. feb

17:15   SA-SR

18:45   SR-Björninn

20:15   SA-Björninn

Eftir síðasta leik er stefnt að því að fara út að borða saman og svo gleði gleði.