Minnum á samstarf Skautafélagsins og Atlantsolíu

Skautafélag Akureyrar og Atlantsolía hafa gert samning um afsláttarkjör fyrir félagsmenn/stuðningsfólk Skautafélagsins.

Með því að fólk fái sér dælulykil hjá Atlantsolíu og noti hann fæst ekki aðeins eingreiðsla í styrk til valinnar deildar félagsins, heldur tikkar styrkurinn áfram með hverjum keyptum lítra, auk þess sem lykilhafar njóta góðra kjara hjá fyrirtækinu.

Með dælulyklinum fást eftirfarandi afslættir:

5 kr. afsláttur pr. lítra á öllum sjálfsafgreiðslustöðvum Atlantsolíu.
1 kr. af hverjum lítra rennur auk þess til Skautafélags Akureyrar.
10 kr. afsláttur pr. lítra á afmælisdegi dælulykilshafa.
7 kr. afsláttur pr. lítra á Atlantsolíudegi.
15-25% afsláttur hjá samstarfsaðilum Atlantsolíu sem bjóða upp á bílatengdar vörur og þjónustu.
(Sjá nánar áwww.atlantsolia.is)

Athugið að afslátturinn bætist ekki ofan á önnur tilboð eða tilboðsdaga.

Sækja þarf um dælulykill hér og að sjálfsögðu er einnig hægt að breyta dælulyklum sem eru nú þegar í umferð. Á skráningarsíðunni getur fólk síðan valið hverja af þremur deildum félagsins það vill styrkja.

Tengill inn á skráningarsíðuna hjá Atlantsolíu verður í valmyndunum til vinstri hjá deildunum.