Karfan er tóm.
Þjálfaranámskeið 1a, alm. hluti á Akureyri!
Þjálfaranámskeið 1a, alm. hluti verður haldið í íþróttahöllinni á Akureyri 21. og 22. okt. nk. Námskeiðið gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar og er opið öllum 16 ára og eldri. Skráning fer fram á skrifstofu ÍSÍ á Akureyri í síma 460-1467 eða netfang vidarsig@isisport.is fyrir fim. 20. okt. Allar nánari uppl. eru fúslega veittar á skrifstofu ÍSÍ á Akureyri. Þjálfaranámskeið ÍSÍ eru metin til eininga í framhaldsskólum landsins.
Tekið af heimasíðu ÍSÍ