Opin krulluæfing: Fullt á öllum brautum

Yfir 70 manns á svellinu - hér er hluti hópsins, starfsfólk Sjúkrahússins að æfa sig fyrir Ólympíule…
Yfir 70 manns á svellinu - hér er hluti hópsins, starfsfólk Sjúkrahússins að æfa sig fyrir Ólympíuleikana.
Einn leikur í Íslandsmóti og þrír gestahópar á svellinu, allar brautir í notkun.

Það var fjölmenni á svellinu í gærkvöldi, spilað á öllum sex brautunum og yfir 70 manns að spila krullu samtímis. Auk þess sem einn leikur fór fram í deildarkeppni Íslandsmótsins var starfsfólk Bónus á tveimur brautum í brjálaðri keppni innbyrðis, starfsfólk Sjúkrahússins á Akureyri æfði af krafti á tveimur brautum fyrir Ólympíuleika Sjúkrahússins og starfsfólk Vodafone æfði á einni braut.

Myndir af starfsfólki Bónus hér

Myndir af starfsfólki Sjúkrahússins hér.