SA Íslandsmeistarar 2016 í 4. flokki

SA sigraði í öllum leikjum sínum í þriðja og síðasta helgarmóti Íslandsmótsins í 4. flokki um helgina og tryggði sér þar með Íslandsmeistaratitilinn. Liðið sigraði 10 leiki af 12 í Íslandsmótinu í vetur og alla 4 leiki sína í bikarmótinu.

SA sigraði SR 3-2 og Björninn 12-2 á laugardaginn og á sunnudaginn fóru leikir 9-1 gegn Birninum og 5-2 gegn SR. SR varð í öðru sæti í Íslandsmótinu og Björninn í því þriðja. Kolbrún María Garðarsdóttir fyrirliði SA tók á móti Íslandsmeistarabikarnum í lok móts úr hendi Konráðs Gylfasonar framkvæmdastjóra ÍHÍ.

Við óskum krökkunum í fjórða flokki til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn og frábært tímabil.