SA Íslandsmeistarar í 4. flokki

SA sigraði í þriðja og síðasta helgarmóti Íslandsmótsins í 4. flokki í dag og fékk afhentann Íslandsmeistarabikarinn. Liðið sigraði með nokkrum yfirburðum en það vann alla leiki vetrarins bæði í Íslansmóti og bikarmóti.

SA sigraði SR 6-2 og Björninn 14-4 í gær en í morgun 10-3 gegn Birninum og 6-0 gegn SR. Lið SR náði öðru sætinu eftir æsispennandi úrslitaleik gegn Birninum sem endaði með vítakeppni.

Við óskum krökkunum í fjórða flokki til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn og frábært tímabil.

4. flokkur Íslandsmeistarar