SA stelpur sigra aftur

Jónína Guðbjartsdóttir í baráttunni - Ási ljósmyndari fangaði augnablikið
Jónína Guðbjartsdóttir í baráttunni - Ási ljósmyndari fangaði augnablikið
Í gærkvöldi spiluðu SA og Björninn í kvennaflokki en um var að ræða seinni leik af tveimur þessa helgina.  Það er skemmst frá því að segja að stelpurnar fylgdu eftir góðum sigri á föstudagskvöldið með því að leggja Björninn aftur að velli, nú með fjórum mörkum gegn tveimur.Leikskýrslan liggur ekki fyrir þegar þessi orð eru skrifuð en loturnar fóru 0 - 0, 3 - 1 og 1 - 1.  Fyrsta mark leiksins var hálfgert sjálfsmark en þá hrökk pökkurinn af kylfu varnarmans Bjarnarins í markið framhjá Karitas.  Hin mörk SA skoruðu þær Sarah Smiley, Hrund Thorlacius og Linda Sveinsdóttir.  Mörk Bjarnarins skoruðu Flosrún Vaka og Hanna Heimisdóttir.