SA vann 1. leik; 5 - 2

Það var sætur sigur sem vannst á heimavelli Skautafélags Reykjavíkur í gærkvöldi í fyrsta úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn 2007.  Það var á brattann að sækja fyrir okkur norðanmenn eftir að hafa tapaði í tvígang fyrir SR um nýliðna helgi og tapað þar með heimaleikjaréttinum.

Það var óheppilegt en ekki óyfirstíganlegt að geta ekki hafið keppnina á heimavelli en staðreynd málsins er sú að SA liðið hefur alltaf kunnað vel við sig í Laugadalnum og því var það ekki fyrirkvíðanlegt að hefja úrslitarimmuna þar – enda kom það á daginn.

Það verður þó að segjast eins og er að það blés ekki byrlega í upphafi leiks hjá okkur því SR-ingar skoruðu tvö mörk strax í 1. lotu sem voru að okkar mati heldur ódýr.  Fyrra markið lak í gegnum klofið á Ómari Smára í markinu og í seinna markinu var vafamál hvort pökkurinn hafði farið yfir marklínuna áður en dómari leiksins flautaði.

Til að bæta gráu ofaná svart gekk hvorki  né rak í sóknarleiknum og enn létu mörkin standa á sér.  Staðan var því 2 – 0 fyrir SR þegar 2. lota hófst.  Liðið barðist vel í 2. leikhluta og skapaði sér fjölmörg tækifæri en allt kom fyrir ekki fyrr en Jón Gísla opnaði loks markareikninginn og minkaði muninn í eitt  mark.  Þannig stóðu leikar eftir 2. lotu og því ríkti mikil spenna fyrir 3. og síðustu lotuna.  Stemningin var góð í liðinu og einhvern veginn vorum við sannfærðir um að við værum með þetta í hendi okkar.  Í 3. lotunni gekk allt upp og loksins fóru pekkirnir að lenda í markmöskvunum fyrir aftan Birgi Örn Sveinsson, sem átt hefur hvern stórleikinn á fætur öðrum að undanförnu.

Tomas Fiala jafnaði leikinn en það var síðan Elvar Jónsteinsson sem setti “gamewinner-inn” þegar við vorum einum færri, (sem er ávallt sérstaklega sætt), eftir að hafa sett mikla pressu á SR-vörnina í power play uppspili.  Tomas og Jón Gísla bættu svo við einu marki hvor og tryggðu góðan sigur.  Síðasta lotan vannst 4 – 0 og því endaði leikurinn með 5 – 2 sigri okkar Akureyringa.

Neðangreindar upplýsingar um mörk og stoðsendingar eru fengnar af vef Íshokkísambands Íslands.

Mörk/stoðsendingar SR:

Stefán Hrafnsson 1/0
Daniel Kolar 1/0
Mirek Krivanek 0/1

Brottrekstrar/fjöldi: 24 mín/7

Mörk/stoðsendingar SA:

Jón B. Gíslason 2/1
Tomas Fiala 2/1
Elvar Jónsteinsson 1/0
Jón Ingi Hallgrímsson 0/1
Steinar Grettisson 0/1

Brottrekstrar/fjöldi: 8 mín/4