Sami Lehtinen ráðinn yfirþjálfari SA hokkídeildar

Sami og Ollý formaður handsala samninginn
Sami og Ollý formaður handsala samninginn

Sami Lehtinen hefur skrifað undir samning við SA hokkídeild og tekur við sem yfirþjálfari fyrir komandi tímabil. Sami verður yfirþjálfari meistaraflokkanna, 2. flk , 3. flk og 4. flk ásamt því að stýra markmannsþjálfun. Hann mun einnig gegna hlutverki þróunastjóra og koma að stefnumótun deildarinnar til langs tíma.

Sami sem kemur frá Finnlandi er 48 ára gamall fyrverrandi atvinnumaður í íshokkí en hefur síðastliðin 14 ár starfað við þjálfun og komið víða að. Á síðasta tímabili þjálfaði Sami Nybro Vikings í 1. deildinni í Svíþjóð en hann hefur lengst um starfað fyrir heimaklúbbinn sinn, Rauma Lukko, sem er eitt allra öflugasta félagslið Finnlands. Þar hefur Sami gegnt flest öllum yfirþjálfarastöðum í félaginu en meðal annars verið aðalþjálfari unglingaliða ásamt því að gegna yfirþjálfarastöðum bæði yngri flokka og unglingaflokka. Sami hefur einnig mikla reynslu af markmannsþjálfun og verið markmannsþjálfari liða í efstu deild í Finnlandi. Sami hefur einnig komið að framtíðarmótun og þróunarstarfi í Finnlandi en reynsla hans á því sviðið á eftir að vega þungt fyrir ungt íslenskt íshokkí.

„Ég er spenntur fyrir því að kynnast nýrri menningu og nýjum klúbb. Starfið er bæði hvetjandi og krefjandi og mig hlakkar til að byrja vinna með íþróttahliðina hjá SA hokkí. 

Árangur síðasta tímabils var fullkomin hjá félaginu svo ég vonast til þess að geta haldið áfram á sömu braut en fyrst og fremst að þróa leikmennina hvern fyrir sig en á sama tíma byggja upp faglega hluta félagsins.“ segir Sami.

Við bjóðum Sami velkomin til félagsins og bíðum spennt eftir að hefja stamstarfið við hann.