Skeiðklukkur fyrir krullufólk

Einn keppendanna sem kemur á Ice Cup er umboðsmaður fyrir Rockwatch-skeiðklukkurnar. Vantar þig klukku?Leslie Prince er umboðsmaður á sínu svæði fyrir þessar vinsælu skeiðklukkur krullufólks. Ef einhver hefur áhuga á að fá sér klukku getur hún komið með klukkur með sér og gengið frá sölunni á fljótlegan og einfaldan hátt. Það krullufólk sem hefur áhuga á að fá sér slíka klukku getur haft samband við Harald í s. 824 2778 eða sent tölvupóst á haring@simnet.is í síðasta lagi 20. apríl. Klukkurnar kosta 45 kanadadali eða um 3.200 íslenskar krónur. Um er að ræða klukkur af gerðinni Rockwatch eins og eitthvað af krullufólki notar nú þegar, klukkurnar sem festar eru utan um kústinn.