SR vann Björninn í Egilshöll

Í kvöld leiddu Björninn og SR saman hesta sína í Egilshöll og var leikurinn hin besta skemmtan S.R. höfðu yfirhöndina lengst af en Björninn átti góða spretti inn á milli. Sigur SR-inga 4-7 gefur kannski ekki alveg rétta mynd af leiknum en liðin voru lengst af jafnari en markatalan gefur til kynna.SR byrjuðu vel og komust í 3-0 í fyrsta leikhluta, mörkin komu án mikillar fyrirhafnar og kvöldið virtist ætla að vera auðvelt fyrir SR. Á þessum leikkafla gekk ekkert upp hjá Birninum, sendingar ónákvæmar og spilið lítið sem ekkert. Ekki var þó um neitt áhugaleysi hjá þeim að ræða, það gekk bara ekkert upp. Undir lokin tókst Birninum þó að setja hann einu sinni og var staðan 1-3 eftir fyrsta leikhluta. Í öðrum leikhluta voru Bjarnamenn frískari spilið fór að ganga betur og SR virtust verða kærulausir og jafnaði Björninn leikin í 3-3 eftir tvo leikhluta. Á innan við 2 mínútum í upphafi þriðja leikhluta skoruðu SR tvívegis og tóku öll völd, búnir að hrista af sér slenið. Björninn gafst þó ekki upp og minnkaði muninn af miklu harðfylgi í 5-4 og höfðu síðan tækifæri til að jafna á “powerplay” en einn leikmaður kaus að brjóta á for-tjekkara SR á eigin vallarhelmingi á mjög klunnalegan hátt og þar með var “power-playið” farið út í veður og vind. Eftir þetta skoraði SR tvívegis og tryggði sér öruggan sigur. Eitt leiðinda-atvik átti sér stað í öðrum leikhluta, en leikmaður Bjarnarins”dömpaði” þá pekkinum inn í sónu S.R. eftir að dómari leiksins var búinn að flauta á rangstöðu. Pökkurinn fór í andlit Gústa danska og blæddi úr munni hans og brotnaði töluvert af tönnum. Nákvæmar fregnir hafa ekki fengist en við vonum að Gústi nái sér hið fyrsta. Björninn-SR 4-7 (1-3/2-0/1-4)