Tilkynning frá gjaldkera Krulludeildar

Kæru félagar.

Ég vil minna ykkur á að greiða félagsgjöldin (æfingagjöld) sem eru 7.000 kr. á einstakling fyrir veturinn en 10,000 kr. fyrir hjón eða sambýlisfólk. Það má skipta þessum greiðslum í tvennt ef menn vilja. Ef möguleiki er á að fá endurgreiðslu frá stéttarfélagi eða vinnuveitanda hafið þá samband við gjaldkera til að fá kvittun. Allir sem greitt hafa gjaldið fá tvö eintök af nýju merki Krulludeildar og aðgang að CurlTV, sem er vandað krullusjónvarp á vefnum. Allir krulluiðkendur fá aðgang að CurlTV til kynningar fram til 1. ágúst 2008. Aðgangsorð verða send krullufólki í tölvupósti á næstunni ásamt leiðbeiningum um vefinn.

Greiðsluupplýsingar
Bankareikningur: 0302-13-301232. Kennitala: 590269-2989. Staðfesting sendist í netfangið davidvals@simnet.is, munið að setja inn skýringu þegar greitt er í heimabönkum.