Tveir leikir í Egilshöll í kvöld

Í kvöld klukkan 19.00 mætast í Egilshöll Björninn og SA í mfl. í sinni annari viðureign þessa helgi og víst er að hart verður barist en í gærkvöldi hafði SA sigur og ætlar sér örugglega ekkert minna í kvöld. Strax á eftir mfl. leiknum munu eigast við í 3.flokki Björninn og SA.        Áfram SA .....................

 

Björninn vann síðast þegar þessi tvö lið mættust og víst er að SA drengir munu reyna að jafna það út í kvöld. Leikir þessara ungu leikmanna eru ókristilega seint á dagská að mati margra foreldra og margir hafa spurt mig hvort það þekkist í einhverri annarri íþrótt hér á landi að unglingar spili sitt Íslandsmót um miðnætti, veit einhver það. Gaman væri að fá komment á þetta á reynir@sasport.is því þetta eru vissulega gild sjónarmið.