SA liðin leika bæði heimaleiki við Fjölni í Hertz-deildunum á laugardag í Skautahöllinni á Akureyri. Fyrst taka SA Víkingar á móti Fjölni í Hertz-deild karla kl. 16:45 og stelpurnar í SA mæta Fjölni í Hertz-deild kvenna kl. 19:30. Miðaverð á leikina er 1500 kr. og frítt inn fyrir 16 ára og yngri en forsala miða er hafinn á Stubb. Foreldrafélag íshokkídeildar grillar hamborgara fyrir gesti í nýju félagsaðstöðunni á meðan birgðir endast en kveikt verður á grillinu frá kl. 15:30. Samlokugrillið í sjoppunni verður einnig funheitt svo engin ætti að verða svangur á leikjunum.