Vorsýning 27. apríl - 1&2 hópur ATH. breyttur æfingatími á föstudag

 

Framundan er vorsýning þann 27. apríl. Á föstudag 18. apríl verður breyting á æfingatíma 2. hóps vegna hokkímóts og skulu iðkendur mæta kl. 15:45-16:30. Sjá nánari umfjöllun

Kæru foreldrar/forráðamenn iðkenda í 1. og 2. hópi! 

Við höfum nú hafið æfingar á vorsýningu listhlaupadeildarinnar. Vorsýningin í ár ber heitið Vorgleði og verður haldin 27. apríl kl. 17.

 

Það verða örlitlar breytingar á æfingatímum fram að sýningu bæði vegna hokkímóts núna um helgina og svo verða aukaæfingar. Mikilvægt er að mæta eins vel og kostur er til að sýningin verði sem glæsilegust.

 

Á föstudag 18. apríl verður breyting á æfingatíma 2. hóps vegna hokkímóts og skulu iðkendur mæta kl. 15:45-16:30.

 

Í næstu viku verða einhverjar breytingar á æfingum og fá iðkendur bréf um það þegar nær dregur og einnig er hægt að nálgast allar upplýsingar á heimsíðu deildarinnar sasport.is/skautar!

 

Upplýsingar varðandi búninga verða afhentar á föstudag og einnig verður það sett á heimasíðuna.

 

Með kærri kveðju,

stjórn og þjálfarar