80 ára afmælishátíð ÍBA í boganum á morgun

Íþróttabandalag Akureyrar fagnar 80 ára afmæli sínu 20. desember næstkomandi. Af því tilefni verður slegið upp í íþróttahátíð í Boganum á Akureyri laugardaginn 7.desember.

Hátíðin verður sett með stuttu ávarpi formanns ÍBA klukkan 13:00 en hátíðin sjálf stendur til 17:00.

Innan vébanda ÍBA eru tuttugu íþróttafélög og munu flest þeirra vera á staðnum og kynna starfsemi sína og leyfa gestum og gangandi að prufa hinar ýmsu íþróttagreinar en innan aðildarfélaga ÍBA eru hátt í 50 íþróttagreinar. Auk þess fáum við nokkra góða gesti í Bogann sem munu halda uppi fjörinu með okkur og boðið verður upp á léttar veitingar fyrir gesti.

Þennan sama dag á Íþróttafélagið Akur, sem er eitt af aðildarfélögum ÍBA, einmitt líka stórafmæli en félagið fagnar 50 ára afmæli sínu þennan dag og verður því fagnað sérstaklega á hátíðinni.

Skautafélag Akureyrar verður að sjálfsögðu með kynningu á öllum okkar íþróttagreinum svo gestum gefst tækifæri á að prófa sig í greinunum.

Hlökkum til að sjá sem flesta, allir velkomnir og að sjálfsögðu frítt inn fyrir alla.