Karfan er tóm.
Boðað er til aðalfundar listhlaupadeildar Skautafélags Akureyrar þriðjudaginn 12.maí klukkan 20:00 í fundarherbergi skautahallarinnar. Venjuleg aðalfundarstörf skv. lögum félagsins.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta en allir skuldlausir félagsmenn 16 ára og eldri hafa atkvæðisrétt, málfrelsi, tillögurétt og kjörgengi til stjórnarstarfa á aðalfundi félagsins
Dagskrá fundarins
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar.
3. Stjórn gefur skýrslu um fjárhag deildarinnar og leggur fram endurskoðaða ársreikninga
4. Kosning stjórnar skautaárið 2015-2016
5. Önnur mál sem fram kunna að koma.