Karfan er tóm.
Íshokkílandslið U-20 hefur keppni í dag á heimsmeistaramótinu í 3. deild sem fram fer í Sófíu í Búlgaríu. Ísland mætir heimaliði Búlgaríu í fyrsta leik sínum en leikurinn hefst kl. 18.30 og er sýndur í beinni útseningu hér.
Ísland er í riðli með Búlgaríu, Nýja-Sjálandi og Mexíkó en í hinum riðlinum eru Ástralía, Tyrkland, Tapei og Suður-Afríka. Ísland mætti Suður-Afríku í æfingaleik á laugardag þar sem Ísland vann 6-2. Fylgjast má með stöðunni í mótinu og dagskránni á heimasíðu alþjóða íshokkísambandsins. 12 leikmenn úr SA eru í liðinu en fjórir þeirra leika nú með félagsliðum erlendis.
Leikmenn SA:
Helgi Þór Ívarsson
Einar Grant
Halldór Ingi Skúlason
Róbert Máni Hafberg
Gunnar Aðalgeir Arason
Atli Þór Sveinsson
Heiðar Örn Kristveigarson
Axel Snær Orongan
Unnar Hafberg Rúnarson
Kristján Árnason
Bjartur Geir Gunnarsson
Heiðar Gauti Jóhannsson.
Stjórnarmaðurinn Ari Gunnar Óskarsson er að sjálfsögðu tækjastjóri liðsins og annar stjórnarmaður hann Sæmundur Leifsson er einnig við störf á mótinu sem línudómari.