2 leikir á morgun laugardag

Á morgun laugardag eru tveir leikir hér í skautahöllinni. Í mfl. karla leika Jötnar við hið nýja lið Bjarnarins sem nefnist Húnar. Leikurinn ætti að hafa alla burði til að verða jafn og spennandi og hin besta skemmtun. Leikurinn hefst stundvíslega kl. 16,30 og strax að honum loknum spila Ynjur við kvennalið Bjarnarins og ég sá á vef ÍHÍ áðan að Bjarnarkonum var að bætast liðsauki með endurkomu Öggu og víst er að Ynjur þurfa að berjast hart til að eiga sigur vísan. Líklegt er að kvennaleikurinn hefjist um kl. 19.  og nú er skyldumæting fyrir alla áhugasama um hokkí og almenna fjölskyldu skemmtan.   ÁFRAM SA ..........