Æfingabúðir U20 fóru fram á Akureyri um helgina

Þjálfari liðsins er Josh Gribben og nú um helgina fóru fram æfingabúðir liðsins hér á Akureyri.  Þetta er í annað skiptið í vetur liðið kemur saman því snemma í september komu öll landsliðin saman til æfinga í Reykjavík.  Æfingarnar um helgina var fyrsta æfingin sem var aðeins fyrir U20 ára liðið en endanlegur hópur verður valinn á næstunni.

 Auk æfinganna átti liðið einnig æfingaleik við Víkinga á laugardagskvöldið og þrátt fyrir að hafa átti í vök að verjast, sérstaklega í upphafi leiks, sýndi liðið gott spil og tókst á stundum að leika vörn Víkinga grátt og skoruðu m.a. 4 mörk.

Nokkra sterka leikmenn vantaði í hópinn um helgina, en m.a. eru Akureyringarnir þeir Jóhann Leifsson og Ingólfur Elíasson erlendis.

Liðinu bíður ærið verkefni í janúar, en það er að vinna deildina og komast aftur upp í 2. deild þar sem við viljum vera.