Afmælismót Ice Cup - sérmerktir bolir til sölu


Í tilefni þess að eftir tæpan mánuð heldur Krulludeild SA hið alþjóðlega krullumót Ice Cup í tíunda skipti er í framleiðslu sérstakt afmælismerki sem selt veður á mótinu og nú er í undirbúningi að panta boli með merkinu á. Mátun og móttaka pantana verður mánudagskvöldið 15. apríl. Afsláttur er veittur þeim sem panta fyrirfram.

Hægt verður að fá bæði stutterma og síðerma boli. Stuttermabolirnir munu kosta 2.500 krónur fyrir þá sem máta og panta fyrirfram, en þeir síðerma verða á 4.000 krónur. Með því að panta fyrirfram fæst 500 króna afsláttur, en bolirnir verða einnig seldir í takmörkuðu magni á Ice Cup.

Áhugasamt krullufólk er hvatt til að mæta í höllina mánudagskvöldið 15. apríl til að máta og ganga frá pöntunum.

Davíð Valsson, gjaldkeri Krulludeildar, tekur við pöntunum, davidvals@simnet.is, s. 892 3466.