Karfan er tóm.
Fyrsta umferð Akureyrarmótsins fór fram á mánudagskvöldið en fimm lið eru skráð til þátttöku. Nokkuð er um forföll en það stendur til bóta. Í fyrstu umferð léku annars vegar Garpar og „Stelpurnar“ (sem enn hafa ekki tilkynnt nafn á liðið), og lauk þeim leik með sigri Stelpnanna 4-2. Í hinum leiknum léku Víkingar við Dollý þar sem leiknum lauk með sigri Dollý 5-1. Ice Hunt sat hjá í fyrstu umferð.
Úrslit leikja og nánar upplýsingar er að finna í excel-skjali hér...
Næstu leikir verða mánudaginn 3. nóvember en þá leika Dollý gegn Görpum og Ice Hunt gegn Víkingum. Stelpurnar sitja hjá.