Allir í höllina

Mynd: Sigurgeir Haraldsson
Mynd: Sigurgeir Haraldsson

Í kvöld kl. 19.30 mætast SA Víkingar og Björninn í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitil karla í íshokkí 2013. Nú þurfum við að fylla Skautahöllina á Akureyri og sýna mátt okkar og megin. Fullir pallar af hávaðasömum áhorfendum geta skipt sköpum í þessum leik. 

Aðgangseyrir er 1.500 krónur, en frítt fyrir 16 ára og yngri. Þar sem væntanlega verður örtröð við innganginn rétt fyrir leik væri vel þegið ef gestir greiddu með seðlum til að flýta fyrir.