Áramótamótið 2015

Fyrir einhvern klaufaskap rataði þessi auglýsing ekki inn á síðuna okkar heldur fór aðeins inn á facebook-síðu krulludeildarinnar. Beðist er velvirðingar á því.

Að venju blásum við til Áramótamóts Krulludeildar. Mæting er kl. 19:30, miðvikudaginn 30. Desember. 
Allir eru velkomnir til þátttöku í Áramótamótinu, vanir sem óvanir. Spilaðir verða stuttir leikir og áhersla á að allir skemmti sér þó svo keppnin og keppnisskapið verði að sjálfsögðu ekki langt undan fremur en venjulega
Eins og undanfarin ár munum við draga saman í lið og reyna að stýra því þannig að liðin blandis vönum og óvönum. Undantekning frá drættinum er ef til dæmis fjölskyldur vilja koma saman og spila saman í liði.
Þátttakendur eru hvattir til að gefa sjálfum sér lausan tauminn og láta hugarflugið ráða búningavali.

Ekki er nauðsynlegt að skrá sig í mótið, nóg að gera það á staðnum. En þó væri betra ef menn myndu skrá sig á viðburðinn á facebook síðunni.