Bautamótið í 4. flokki - breyttur almenningstími á laugardag


Á laugardag og sunnudag fer fram Bautamótið í íshokkí þar sem lið í 4. flokki eigast við. Almenningstími á laugardaginn verður styttur vegna mótsins.

Reiknað er með að morgunleikjum laugardagsins ljúki upp úr klukkan eitt þannig að lítil töf verður á upphafi almenningstímans, en síðan verður lokað kl. 16 og hefst keppni aftur kl. 16.15 á laugardaginn. Á sunnudag er reiknað með að mótinu ljúki um eða upp úr klukkan eitt þannig að litlar ef nokkrar tafir verða á almenningstímanum þá. 

Sjá dagskrá mótsins hér (pdf)