Bautamótið - myndir frá Ása ljós

Spilað úti í blíðunni á milli leikja, á skónum.
Spilað úti í blíðunni á milli leikja, á skónum.


Eins og við sögðum frá um liðna helgi þegar við birtum nokkrar myndir frá Bautamótinu þá sást til "alvöru" ljósmyndara á svæðinu. Þar var á ferðinni Ásgrímur Ágústsson - Ási ljós - og eru nú komnar 50 myndir frá honum í albúm. 

Myndin með þessari frétt sýnir best áhugann sem fylgir þessum mótum. Krakkarnir láta ekki deigan síga á milli leikja heldur fara út á tjörn og spila hokkí þar í blíðunni, á skónum.

Myndaalbúm.