Bein netútsending úr Egilshöll

Mynd: Sigurgeir Haraldsson (19.03.2013)
Mynd: Sigurgeir Haraldsson (19.03.2013)

Annar leikur SA og Bjarnarins í úrslitum Íslandsmótsins í íshokkí karla verður í beinni útsendingu í gegnum heimasíðu Bjarnarins, bjorninn.com. Hægt verður að horfa á leikinn á stóra skjánum í fundarherberginu í Skautahöllinni.

Hokkíáhugafólk getur komið saman í fundarherberginu í Skautahöllinni á Akureyri og horft á leikinn þar. Tölva hefur verið tengd við stóra skjáinn í fundarherberginu og nú krossum við fingur og vonum að útsendingin og móttakan verði með betra móti og hökt með minna móti.

Þetta er kjörið tækifæri til að horfa saman á leikinn og láta visku sína í ljós um það hvernig á að spila hokkí og hvernig ekki, hvernig á að dæma hokkí og hvernig á ekki....

Leikurinn hefst kl. 19.00 í kvöld.

Vefsjónvarp Bjarnarins.